Sannkölluð sveit í borg
Selfoss er að vísu bær, en hér er allt til alls. Og það skiptir máli hvað er í kringum heimilið - kyrrð og náttúra við bæjardyrnar, mannlíf og þjónusta skammt undan.
Fjölbreytt og lágreist hverfi
Einbýlishúsalóðirnar eru 830-1.270 m². Það gefur þér rými til að hugsa húsið og garðinn saman, hvort sem þig langar í gróðurhús, góða verönd eða grasflöt fyrir leiki.
Þjónustan skammt undan
Það munar um að þurfa ekki að fara langt í daglegum erindum. Skólar, matvöruverslanir og apótek eru skammt undan, heilbrigðisþjónusta við hlið hverfisins og í skipulaginu er gert ráð fyrir leikskóla.
Njóttu frítímans
Golfhringur á Svarfhóli, sundferð eða kaffi með vini í miðbænum. Á Selfossi er fjölbreytt íþróttastarf, veitingastaðir og kaffihús. Hvort sem þú vilt hreyfa þig eða hitta fólk er stutt að fara.
Náttúran við bæjardyrnar
Ölfusá liggur meðfram hverfinu og Ingólfsfjall blasir við handan hennar. Gönguleiðir við árbakkann og Hellisskógur í nágrenninu gera það auðvelt að njóta útiveru í fallegu umhverfi.